Bókaforlagið Blátunga er mitt eigið forlag sem ég stofnaði þegar ég gaf út ljóðasafnið Fimm vörður á vegi ástarinnar og Fem stenrösen på kärlekens stig, sem er sama ljóðasafn á sænsku. Þetta gerðist á vordögum 2003.
Nafnið á forlaginu er komið til af tvennu; gatan sem við búum við í Lundi heitir Blåtungavägen - í íslenskri þýðingu "Blátunguvegur". Síðan hlýtur það að vera mikil eðaltunga sem skáldar á blárri tungu, rétt eins og blátt eðalblóðrennur um æðar kóngafólksins...
Kostir þess að gefa út sjálfur eru margir. Einn sá stærsti er sá að maður fær að skapa fram í rauðan dauðann - ráða öllu um afurðina; útliti, upplagi og útgáfutíma. Erfiði hlutinn er dreifingin og markaðssetningin sem mér finnst hvorki auðvelt né skemmtilegt!
Ofangreind ljóðasöfn komu út á brúðkaupsdaginn okkar Lars, 7. júní 2003. Brúðkaupsgestirnir laumuðu fyrstu eintökunum í veisluna sem haldin var í Bäckaskog Slott (Lækjaskógarhöll) hér á Skáni. Brúðguminn vissi ekkert um tilurð eða útkomu bókanna fyrr en Sunna Dís las ljóð úr bókinni og afhenti honum fyrsta eintakið.
Bäckaskog Slott var upphaflega reist sem munkaklaustur fyrir um átta öldum síðan. Vígslan okkar fór fram í upphaflegu munkakapellunni með trétrumb fyrir altari. Veislan var í gamla munkagarðinum í sól og 25 stiga hita. Til að gera daginn eftirminnilegri grétu englarnir síðan gulli og tárum. Þar á eftir beið turnherbergið eins og vera ber í ævintýrum...
UPP